Akureyri leikur til úrslita á Íslandsmótinu í öðrum flokki karla

Akureyri mun leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta í 2. flokki karla en norðanmenn lögðu ÍR að velli, 32:29, í undanúrslitum keppninnar í dag. Staðan í hálfleik var 16:14 fyrir ÍR.

Akureyri mun að öllum líkindum mæta Haukum í úrslitaleiknum,en Haukar lögðu FH að velli, 26:25, í hinum í undanúrslitaleiknum. FH hefur hins vegar kært úrslitin samkvæmt upplýsingum heimasíðu Akureyrar Handboltafélags, og því ekki endanlega ljóst hvort það verði Haukar eða FH sem mætir Akureyri í úrslitum.

 

Úrslitaleikurinn á að fara fram á morgun í íþróttahúsinu við Strandgötu kl. 14:00, en óvíst er hvort leikurinn fari fram á tilsettum tíma vegna kærunnar.

  

Nýjast