Akureyri áfram í bikarnum eftir eins marks sigur í Kópavogi

Akureyri er komið áfram í 16-liða úrslit Eimskipsbikarkeppni karla í handbolta eftir 29:28 sigur gegn HK í Digranesi í kvöld í 32-liða úrslitum. Staðan var 14:12 í hálfleik fyrir heimamenn. HK-menn gátu jafnað metin á lokasekúndum leiksins en skot þeirra fór yfir markið. Þar með heldur sigurganga Akureyrarliðsins áfram en þetta var fjórði leikur liðsins á leiktíðinni og allir hafa þeir unnist.

Oddur Gretarsson var markahæstur í liði Akureyrar með 10 mörk, Bjarni Fritzson skoraði 7 mörk og þeir Guðmundur Hólmar Helgason og Geir Guðmundsson skoruðu 4 mörk hver.

Ólafur Bjarki Ragnarsson skoraði 9 mörk fyrir HK, Bjarki Már Elísson 5 mörk og Hörður Máson kom næstur með 4 mörk.

Nýjast