Akureyrarhlaup í kvöld

Akureyrarhlaup Íslenskra Verðbréfa og Átaks fer fram í kvöld og hefst við Átak kl. 20:00. UFA sér um framkvæmd hlaupsins og rennur allur ágóði af hlaupinu til barna og unglingastarfs UFA. Félagið hvetur unga sem aldna til að taka fram hlaupaskóna og taka þátt í þessu skemmtilega almenningshlaupi. Hægt verður að hlaupa 5 km, 10 km og hálft maraþon og er keppt í nokkrum aldursflokkum. Nánari upplýsingar um hlaupið er að finna á heimasíðu þess akureyrarhlaup.is.

Nýjast