Margrét Hannesdóttir og Una Dóra Þorbjörnsdóttir sópran söngkonur og Hólmfríður Sigurðardóttir píanóleikari munu halda klassíska tónleika á Akureyrarvöku á morgun, föstudaginn 24. ágúst kl. 20:00 í Hömrum í Menningarhúsinu Hofi. Tónleikarnir munu hafa yfirskriftina Ágústtónar og verða um ein og hálf klukkustund að lengd. Dagskráin verður fjölbreytt, létt og skemmtileg; flutt verða íslensk og erlend sönglög úr öllum áttum, ásamt ýmsum þekktum dúettum og óperuperlum.
Margrét er í mastersnámi í söng í Westminster Choir College í Bandaríkjunum og mun ljúka því næsta vor. Áður en hún fór til Bandaríkjanna lærði hún söng í Söngskólanum í Reykjavík hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur en lærði svo í tvö ár í Söngskóla Sigurðar Demetz hjá Sigrúnu Hjálmtýsdóttur.
Una Dóra lauk burtfararprófi 2011 frá Söngskólanum í Reykjavík undir leiðsögn Ólafar Kolbrúnar. Eftir útskrift fór hún að læra hjá Kristjáni Jóhannsyni en fór svo til Verona á Ítalíu haustið 2011 og stundar þar einkanám í óperusöng.
Hólmfríður lauk einleikaraprófi á píanó frá Tónlistarháskólanum í München. Hún hefur starfað lengi sem meðleikari í Söngskólanum í Reykjavík og hefur komið víða fram sem einleikari og meðleikari bæði hérlendis og erlendis.