Afturelding skellti Akureyri

Mynd/Sævar Geir.
Mynd/Sævar Geir.

Óvænt úrslit urðu í N1-deild karla í handknattleik í gærkvöld þegar Akureyri tapaði gegn Aftureldingu á heimavelli, 23-28. Fyrir leikinn hafði Afturelding tapaði öllum fjórum leikjum sínum í haust en Akureyri var án taps. Akureyri hefur sjö stig í öðru sæti deildarinnar en Afturelding er áfram á botninum þrátt fyrir sigurinn með tvö stig.

Geir Guðmundsson var markahæstur í liði Akureyrar með sjö mörk en Jóhann Jónsson og Hilmar Stefánsson skoruðu sex mörk hvor fyrir Aftureldingu.

 

Nýjast