Áformum um að fella niður sjómannaafsláttinn mótmælt

Aðalfundur Sjómannadeildar Framsýnar- stéttarfélags mótmælir harðlega áformum stjórnvalda um að fella niður sjómannaafsláttinn í áföngum og leggja þar með stóraukna skattbyrði á herðar sjómanna. Sjómannaafslátturinn hefur verið hluti af kjörum sjómanna í um hálfa öld.  

Sjómannadeild Framsýnar hafnar því ekki að málið verði tekið upp í þríhliða viðræðum í næstu kjarasamningum milli stjórnvalda, LÍÚ og stéttarfélaga sjómanna. Til umræðu verði einnig fæðis- og hlífðarfatakostnaður sjómanna þar sem það er mjög óeðlilegt að þessar greiðslur, sem útgerðin greiðir sjómönnum, flokkist sem laun og séu skattlagðar sem slíkar. Dagpeningar sem greiddir eru til annarra stétta vegna ferðalaga á vegum vinnuveitanda eru hins vegar ekki skattlagðir. Sjómannadeild Framsýnar ítrekar kröfuna um að Alþingi falli frá öllum áformum sem miða að því að skerða kjör sjómanna umfram aðrar stéttir í landinu.

Nýjast