Ragnheiður Vilma Ingvarsdóttir, 19 ára Akureyringur, útskrifaðist af listnámsbraut frá Verkmenntaskólanum á Akureyri og var annar af tveimur nemendum skólans sem fékk verðlaun fyrir bestan árangur á stúdentsprófi. Einnig fékk Ragnheiður viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í textílgreinum á listnámsbraut.
Ég er bæði skrif- og lesblind og því hentaði mér ágætlega að fara á listnámsbraut. Mér finnst líka mjög gaman að sauma og hanna og hafði alltaf gaman af þessum greinum í grunnskóla. Svo saumaði ég oft með ömmu minni þegar ég var yngri, segir Ragnheiður í spjalli við Vikudag. Lykillinn að árangrinum segir Ragnheiður að sé mikill metnaður.
Hún ætlar að taka sér ársfrí frá námi þar sem heimurinn bíður handan við hornið. Ég ætla að byrja á því að fara í ferðalag, bæði til Frakklands og Danmerkur og skoða heiminn. Svo er ég búinn að sækja um vinnu í Austurríki í haust þar sem stefnan er að vera í hálft ár.
Nánar er rætt við Ragnheiði í prentútgáfu Vikudags