Á síðasta fundi skipulagsnefndar Akureyrar var fjallað um hraðakstur í Skógarlundi. Í viðtalstíma bæjarfulltrúa fyrir nokkru,
var lagður fram undirskriftalisti með 60 nöfnum þar sem skorað var á bæjaryfirvöld að grípa til ráðstafana til að stöðva
hraðakstur um Skógarlund.
Hraðamælingar voru gerðar af framkvæmdadeild á tveimur stöðum í Skógarlundi. Skipulagsnefnd telur niðurstöður sýna að
aðgerða sé þörf til lækkunar á umferðarhraða og óskar eftir tillögum á útfærslum frá framkvæmdadeild t.d.
með hraðamyndavélum eða þrengingum.