Völsungar fá liðsstyrk

Penninn var á lofti í vallarhúsi Völsungs á Húsavík um liðna helgi þar sem þrír leikmenn skrifuðu undir samning við Völsung og munu leika með kvennaliðinu í fótbolta á komandi leiktíð. Leikmennirnir sem umræðir eru Sylvía Lind Henrýsdóttir, Ólöf Rún Rúnarsdóttir og Sarah Elnicky.

Völsungur samningsmál

Í tilkynningu frá Völsungi kemur eftirfarandi fram:

Sylvía Lind Henrýsdóttir er ungur leikmaður sem kemur í gegnum yngri flokka starf félagsins og hefur verið að fá aukið hlutverk í meistaraflokk félagsins. Sylvía skrifaði undir tveggja ára samning við félagið og verður gaman að fylgjast með framþróun hennar í grænu teyjunni.

Ólöf Rún Rúnarsdóttir er einnig ungur leikmaður sem er okkur Völsungum kunnugur enda fór hún í gegnum yngri flokka félagsins áður en hún fluttist austur á land og lék með Fjarðabyggð/Hetti/Leikni. Það má því segja að Ólöf sé komin aftur heim í græna búninginn.

Sarah Elnicky er reynslu mikill leikmaður sem hefur skrifað undir samning við félagið og mun leika með okkur í sumar. Sarah hefur leikið í Svíþjóð, Noregi, Banraríkjunum og Englandi. Meðal liða sem Sarah hefur leikið fyrir eru Sundsvall, Kvarnsveden, Kedkila, Sirius, Haukar og Bristol sem þá voru í efstu deild í Englandi. Það er mikil ánægja að fá eins reynslumikinn leimann í ungt lið Völsungs.

Einnig mun Sarah koma að þjálfun yngri iðkenda félagsins sem er gríðarlega jákvætt. Hún hefur mikla reynslu af þjálfun ungra iðkenda og hefur þegar sótt sér tilskilin réttindi til þess. Sarah er væntanleg til Húsavíkur í byrjun apríl.

Völsungur samningsmál

Eins og fyrr segir er mikil ánægja með undirritun samninga við þessa þrjá leikmenn og má vænta frekari frétta af leikmannamálum á komandi vikum.

 


Athugasemdir

Nýjast