Sameiginleg yfirlýsing Þórs og KA

Mynd úr safni
Mynd úr safni

Vikudagur sagði frá því fyrr í morgun að forráðamenn KA hafi tilkynnt kollegum sínum hjá Þór í gærkvöldi að ákveðið hefði verið að slíta sam­starfi fé­lag­anna í meist­ara­flokki karla í hand­bolta.

Fé­lög­in hafa frá ár­inu 2006 teflt sam­an fram liði und­ir merkj­um Ak­ur­eyr­ar Hand­bolta­fé­lags en nú er ljóst að KA verður með lið í 1. deild á næstu leiktíð. Óljóst er hvort þar verður einnig lið með nafni Þórs eða Ak­ur­eyr­ar Hand­bolta­fé­lags, en vilji Þórsara var til þess að halda sam­starf­inu áfram.

Félögin KA og Þór hafa nú sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu:

Undanfarnar vikur hafa átt sér stað viðræður milli KA og Þórs með milligöngu ÍBA um áframhaldandi samstarf félaganna um rekstur Akureyri handbolta og KA/Þórs í  kvennahandbolta.

Félögin hafa skipst á hugmyndum sínum og framtíðarsýn um uppbyggingu handknattleiks á Akureyri og skoðað alla möguleika á frekara samstarfi. Í þeim viðræðum hefur komið í ljós að félögin hafa mismunandi sýn á það hvernig best sé að standa að rekstri, samstarfi og uppbyggingu handboltans á Akureyri.

KA hefur því í framhaldinu ákveðið að ekki sé þörf á frekari viðræðum og samstarfi félaganna um rekstur sameiginlegs liðs undir merkjum Akureyrar handbolta. Félögin útiloka ekki samstarf í rekstri kvennaflokka.

Þór og KA þakka fulltrúum ÍBA fyrir sín störf í viðræðunum og óska hvort öðru velfarnaðar í uppbyggingu og keppni á handboltavellinum næstu árin.

Fyrir hönd félaganna

Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA

Valdimar Pálson framkvæmdastjóri Þórs 

 


Athugasemdir

Nýjast