Mikael Máni sigraði á Golfmóti Þórs

F.v: Árni Óðinsson formaður Þórs ásamt sigurvegara Golfmóts Þórs 2017, Mikael Mána Sigurðssyni. Mynd…
F.v: Árni Óðinsson formaður Þórs ásamt sigurvegara Golfmóts Þórs 2017, Mikael Mána Sigurðssyni. Mynd/Palli Jóh/thorsport.is

Golfmót Þórs fór fram á Jaðarsvelli síðasliðinn laugardag, þriðja árið í röð.

Fyrirkomulag mótsins var punktakeppni og var ræst út frá öllum teigum samtímis. 
Alls tóku 80 keppendur þátt og tókst mótið í alla staði vel til í fínu veðri.

„Segja má að úrslitin hafi komið mörgum skemmtilega á óvart en það var Mikael Máni Sigurðsson sem stóð uppi sem sigurvegari en hann er aðeins þrettán ára gamall. Hann hlaut flugfar fyrir tvo til Evrópu með Icelandair auk þess sem hann fékk verðlaun fyrir hæsta stigaskor án forgjafar og nándarverðlaun á 18. holu. Sannarlega glæsilegt hjá þessum unga og bráðefnilega kylfingi,“ segir á heimasíðu Þórs.  

Í öðru sæti var Kjartan Fossberg Sigurðsson og því þriðja var Stefán Bjarni Gunnlaugsson.

Nándarverðlaun hlutu:

  • Hola 1:  Jón Ragnar
  • Hola 8: Ólafur Gylfason
  • Hola 11: Bjarni Fannberg Jónasson
  • Hola 14: Steinþór G
  • Hola 18: Mikael Máni Sigurðsson. 

Verðlaun fyrir að vera sem næst miðlínu í upphafshöggi á 16. braut hlaut Valur Sæmundsson

Á heimasíðu Þórs er komið á framfæri þakklæti til Hreiðars Gíslasonar sem er upphafsmaður þessa mótaraðar. Fyrsta mótið var 100 ára afmælismót Þórs 2015 og tvö mót voru haldin á árinu 2016 og svo fjórða mótið sem haldið var síðastliðin laugardag.  


Athugasemdir

Nýjast