KA og Þór áfram með sameiginlegt lið í kvennahandboltanum

KA/Þór ætlar sér að berjast á toppnum á næsta keppnistímabili. Mynd/KA.is
KA/Þór ætlar sér að berjast á toppnum á næsta keppnistímabili. Mynd/KA.is

Áframhald verður á samstarfi KA og Þórs um sameiginlegt kvennalið í handboltanum undir nafninu KA/Þór. Búið er að gera samning við alla leikmenn liðsins fyrir utan Erlu Heiði Tryggvadóttur sem leggur skóna á hilluna. Þá verða þeir Jónatan Magnússon og Þorvaldur Þorvaldsson áfram þjálfarar liðsins. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu KA

„Þetta eru frábærar fréttir enda náði liðið góðum árangri á nýliðnu tímabili en liðið endaði í 2. sæti 1. deildar með jafn mörg stig og Fjölnir sem varð deildarmeistari. Þá komst liðið í úrslit umspilsins um laust sæti í efstu deild en tapaði þar gegn Selfyssingum,“ segir í tilkynningunni

Nú þegar búið er að tryggja áframhaldandi veru núverandi leikmanna liðsins hyggur liðið á styrkja sig enn frekar.  


Athugasemdir

Nýjast