Aldís Kara með enn eitt metið

Aldís Kara Bergsdóttir. Mynd/Skautafélag Akureyrar
Aldís Kara Bergsdóttir. Mynd/Skautafélag Akureyrar

Aldís Kara Bergsdóttir bætti stigamet íslenskra skautara á Norðurlandamóti í listhlaupi á skautum sem fram fór í Hørsholm í Danmörku um helgina. Hún keppti  í Senior flokki og náði 119.75 stigum og endaði í 9. sæti en hún fékk 42.09 stig í stutta og 77.66 stig í frjálsa prógramminu.

Júlía Rós Viðarsdóttir keppti í Junior flokki fékk 40.60 stig í stutta prógraminu og 67.62 stig fyrir frjálsa og 108.22 stig í heildina og lenti í 8. sæti á mótinu. Freydís Jóna Jing Bergsveinsdóttir og Sædís Heba Guðmundsdóttir kepptu í Advanced Novice og fékk Freydís 21.23 stig í stutta, 43.58 í frjálsa og 64.81 stig í heildina og 10. sæti á mótinu. Sædís fékk 22.70 stig í stutta, 34.06 í frjálsa og 56.76 í heildarstigum og 12. sætið á sínu fyrsta Norðurlandamóti. „Flott frammistaða hjá stúlkunum okkar verður spennandi að fylgjast með þeim á RIG sem fram fer um næstu helgi í Laugardal,“ segir á vef Skautafélags Akureyrar.


Athugasemdir

Nýjast