Útgáfuhóf á Sigurhæðum Hamingja og Prestur fer á stefnumót

Verk eftir Hildi Eir Bolladóttur og Mars Baldurs eru komin út í Pastel ritröð á vegum Flóru menningarhúss í Sigurhæðum á Akureyri. Útgáfuhóf verður af því tilefni á mmorgun, Sumardaginn fyrsta.

Verk Mars ber titilinn Hamingja og er einstaklega fimlega rituð og grípandi smásaga.

 

Mars er nemandi í nútímafræði við Háskólann á Akureyri og hefur hlotið Ungskálda verðlaun Akureyrarbæjar.
Hamingja er eins og önnur Pastel verk gefið út í 100 númeruðum og árituðum eintökum og verður ekki endurútgefið. Verkið er númer 41 í Pastel ritröð.

Mars Baldurs

Hildur Eir er skáld og prestur við Akureyrarkirkju og hefur áður gefið út þrjár bækur; Hugrekki saga af kvíða, Líkn og Meinvarp. Verk hennar nú ber titilinn Prestur fer á stefnumót og er mögnuð og hárbeitt smásaga. Það er gefið út í 100 númeruðum og árituðum eintökum og verður ekki endurútgefið.

Verkið er númer 42 í Pastel ritröð, seinasta verkið í röðinni, en Flóra hefur nú staðið að ritröðinni í áratug.

Hildur Eir 

Nýjast