Sr. Sólveig Halla Kristjánsdóttir ráðin sóknarprestur í Húsavíkur-prestakalli.

Sólveig Halla Kristjánsdóttir, sóknarprestur á Húsavík. Mynd/epe
Sólveig Halla Kristjánsdóttir, sóknarprestur á Húsavík. Mynd/epe

Sr. Sólveig Halla Kristjánsdóttir hefur verið ráðin nýr sóknarprestur í Húsavíkur-prestakalli. Á vef Þjóðkirkjunnar segir að umsóknarfrestur um starf sóknarprests til þjónustu í Húsavíkurprestakalli, Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi, hafi runnið út á miðnætti þann 6. júlí sl en þrjár sóttu um starfið

Kjörnefnd kaus sr. Sólveigu Höllu Kristjánsdóttur til starfans og hefur biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, staðfest ráðningu hennar.

Í samræmi við þær breytingar sem nú hafa orðið á starfsmannamálum þjóðkirkjunnar er sr. Sólveig Halla ráðin ótímabundið í starfið með hefðbundnum uppsagnarfresti.

Sr. Sólveig Halla Kristjánsdóttir er fædd 14. desember 1977 og ólst upp í Lönguhlíð í Hörgárdal, dóttir Kristjáns Hermannssonar og Jórunnar Sigtryggsdóttur sem er látin. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1997 og mag.theol. prófi frá guðfræðideild Háskóla Íslands 2004. 

Sr. Sólveig Halla hóf störf hjá Akureyrarkirkju sumarið 2004 og sinnti þar æskulýðsmálum. Hún var svo vígð sem safnaðar- og skólaprestur við Akureyrarkirkju hinn 18. september 2005 og sagði því starfi svo lausu fimm árum síðar. Þá flutti hún ásamt eiginmanni sínum, Sigurði Páli Tryggvasyni, og nýfæddri dóttur, að Þverá í Reykjahverfi Þingeyjarsýslu þar sem þau hófu fjárbúskap. 

Sr. Sólveig Halla sinnti kirkjulegu barnastarfi í Húsavíkur- og Grenjaðarstaðarsókn á árunum 2010-2017, með hléum og hafði um hönd kirkjulegar athafnir sem óskað var eftir og vann jafnframt við sálgæslu. 

Hún lauk diplómaprófi á meistarastigi í Fjölskyldumeðferð frá Endurmenntun Háskóla Íslands vorið 2016 og vann við fjölskyldumeðferð til haust 2017. 

Þá lá leiðin til Noregs og var hún sóknarprestur í Sømna í Noregi frá desember 2017 og fram í ágúst 2018. 

Hún var settur sóknarprestur við afleysingar í eitt ár í Laufásprestakalli 2018-2019. Þá settur sóknarprestur í Húsavíkurprestakalli við afleysingar frá 1. september 2019. 

Eiginmaður hennar er sem fyrr segir Sigurður Páll Tryggvason og eiga þau tvö börn tíu og átta ára gömul og að auki á hún þrjú uppkomin stjúpbörn

 

 


Athugasemdir

Nýjast