Í ár fögnum við 164 ára afmæli Akureyrarbæjar sem hefur í gegnum árin þróast frá því að vera lítið verslunarþorp yfir í öflugt og fjölbreytt samfélag sem veitir þjónustu langt út fyrir bæjarmörkin.
Á Akureyrarvöku verður afmæli Akureyrarbæjar fagnað með litríkri menningardagskrá frá föstudegi fram á laugardagskvöld. Liðlega hundrað viðburðir af öllumstærðum og gerðum eru í boði.
Nýtt leikár Leikfélags Akureyrar hófst á fyrsta samlestri á Fasteignamartröðinni, bráðfyndnu samtímaverki eftir litháenska leikskáldið Gabrielé Labanauskaitė.
Verkið var valið besta erlenda leikritið í Þýskalandi árið 2021.
Barnaheill – Save the Children á Íslandi hófu árlega haustsöfnun sína í gær, fimmtudaginn 27. ágúst, með sölu á vönduðum spilastokki sem var unninn í samvinnu við Rán Flygenring með myndum úr verki hennar Vigdís: Bókin um fyrsta konuforsetann.
Heimahöfn háskólakennslu, sem er samstarfsverkefni allra háskóla landsins og hefur það að markmiði að efla hæfni í háskólakennslu og styðja við faglega þróun kennara, var opnuð formlega af Loga Einarssyni menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra mánudaginn 17. ágúst síðastliðinn.
Heilsuvernd mun reka nýtt hjúkrunarheimili við Þursaholt á Akureyri, en á heimilinu verða 140 hjúkrunarrými. Þetta var formlega afgreitt á fundi með Sjúkratryggingum Íslands í liðinni viku.
Heimildarmyndin Eyríki eftir írsk/rússneska leikstjórann Nikolai Galitzine verður frumsýnd í Sambíóunum á Akureyrarvöku þann 28.ágúst næstkomandi klukkan 18. Tvær aukasýningar verða á myndinni þann 31.ágúst og 3.sept í Sambíóunum Akureyri.