15 manna hópur frá Súlum er lagður af stað á Hálendisvakt. Framundan er vika með aðsetur í Landmannalaugum. Þess má geta að nú er að hefjast 20. sumarið sem Landsbjörg sinnir gæslu á hálendi Íslands
Norðurþing fagnar 20 ára afmæli sínu með þrennum ókeypis fjölskyldutónleikum á Kópaskeri, Raufarhöfn og Húsavík dagana 24.–26. nóvember. Hljómsveit með Ágúst Þór Brynjarsson í broddi fylkingar flytur lög og texta eftir þingeyskt tónlistarfólk. Meðal laga sem stefnt er að því að flytja eru „Eina nótt“ og „Dýrið gengur laust“, bæði við texta Jónasar Friðriks Guðnasonar
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveitar hefur mótmælt fyrirhugaðri 15,9% hækkun kílómetragjalds á ökutæki sem lögð er til í tengslum við fjárlög ársins 2027.
Tíu milljarðar. Svo mikla skattahækkun á ferðaþjónustuna boðar ríkisstjórnin í fjárlögum fyrir árið 2027. Meltið það. Í fyrra var 20 milljarða kr. framlegð í greininni. Helmingurinn á nú að fara í nýja skattstofna. Er nema von að ferðaþjónustan láti í sér heyra? Þegar svona er seilst, þá má ekki mikið út af bera til þess að halla fari undan fæti.
Mikill áhugi reyndist vera á sex athafnalóðum við Sjafnargötu 5-15 á Grænhólssvæðinu á Akureyri sem nýverið voru auglýstar til úthlutunar. „Það var töluverður áhugi fyrir þessum lóðum og við erum í raun búin að úthluta þeim öllum,“ segir Pétur Ingi Haraldsson sviðsstjóri skipulagssviðs.
Þann 27. nóvember heldur North Atlantic Brass, alþjóðlega verðlaunaður málmblásarakvintett, tónleika í Akureyrarkirkju. Kvintettinn er skipaður fimm ungum og metnaðarfullum tónlistarmönnum frá Íslandi, Danmörku og Noregi sem hafa vakið athygli fyrir kraftmikinn flutning, samspil og fjölbreytta efnisskrá