Hægt að breyta mysu í eldsneyti eða áfengi

Sigurður Friðjónsson við tanka sem hugsanlega fyllast af áfengi eða eldsneyti
Sigurður Friðjónsson við tanka sem hugsanlega fyllast af áfengi eða eldsneyti

„Já, það er rétt, nokkra ára rannsóknarvinna er þessar vikurnar að skila þeim árangri að við teljum okkur nú búa yfir þekkingu til að vinna eldsneyti eða áfengi úr mjólkursykri  sem fæst úr mysu. Á hverju ári falla líklega til á bilinu sjö til átta milljónir lítra af sætum vökva með 20 % mjólkursykri í hérna á Akureyri, þannig að við erum að tala um verulegt magn,“  segir Sigurður R. Friðjónsson mjólkurbússtjóri MS á Akureyri í samtali við Vikudag.

 

Á bilinu 25 til 26 milljónir lítra af ostamysu falla til á hverju ári hjá mjólkurbúinu, próteinið fer að stórum hluta í orkudrykki og aðrar framleiðsluvörur.  Úr mjólkursætunni er líklega hægt að framleiða um eina milljón lítra af 96 % alkóhóli, sem gæti þýtt til dæmis liðlega tvær milljónir lítra af venjulegum vodka. Ef mjólkursætan verður  notuð til að framleiða etanol – eldsneyti - , væri hæglega hægt að nota það sem eldsneyti á mjólkurbíla fyrirtækisins og til iðnaðar.

„Við höfum þegar bruggað 96 % alkóhól hérna fyrir norðan, þannig að allrar þessar rannsóknir eru að skila mjög svo jákvæðum og ánægjulegum árangri. Erlendur aðili er að skoða næsta hugsanlega skref með  okkur og fyrstu tillögur eru væntanlegar á næstu vikum. Þetta er mjög spennandi verkefni, enda gæti mjólkursykurinn fært fyrirtækinu verulegar fjárhæðir í framtíðinni,“ segir Sigurður R. Friðjónsson.

karleskil@vikudagur.is

 

 

 

Nýjast