Fyrsti áfangi framkvæmda við nýbyggingu SAk boðin út

Tölvugerð mynd af framtíðarútliti SAk.    Mynd nlsh.is
Tölvugerð mynd af framtíðarútliti SAk. Mynd nlsh.is

Nýr Landspítali ohf. (NLSH) óskar eftir tilboði í útboðsverkið: Sjúkrahúsið á Akureyri – Jarðvinna - Götur, veitur og bílastæði í auglysingu og má segja að þar með sé fyrsta skrefið stigið í átt að þeirri uppbyggingu sem fara skal í á SAk

Verkið er fyrsti áfangi verkframkvæmda við Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) vegna stækkunar á sjúkrahúsinu til suðurs þar sem nú eru bílastæði. Við þessa stækkun þarf að gera ný bílastæði og endurnýja veituker á lóð sjúkrahússins á milli Þórunnarstrætis og Búðartraðar.

Stærstu verkliðir eru

- Gröftur á jarðefnum 50.000 m3

- Malbikun 7.400 m2

Tilboðum skal skila í gegnum útboðskerfið tendsign.is fyrir kl. 13:00, 29. apríl

Nýjast