Fornbíladeild fær undanþágu til aksturs um göngugötuna

Drossíurnar mega fara á rúntinn á miðvikudagskvöldum í sumar    Mynd  Ágúst Ó. Halldórsson
Drossíurnar mega fara á rúntinn á miðvikudagskvöldum í sumar Mynd Ágúst Ó. Halldórsson

Fornbíladeild Bílaklúbbs Akureyrar hefur fengið heimild skipulagsráðs til að aka um göngugötuna í Hafnarstræti á miðvikudagskvöldum í sumar. Göngugatan er lokuð umferð á tímabilinu frá byrjun maí til loka september.

Fornbíladeildin fær undanþágu frá þeirri lokun meirihluti skipulagsráðs sem tók erindi deildarinnar fyrir á fundi nýverið tók jákvætt í málið og samþykkti að heimila deildinni að keyra í gegnum göngugötuna tvisvar sinnum á hverju miðvikudagskvöldi í sumar til reynslu. Fornbíladeildin hefur verið með bíla til sýnis á flötinni við Hof á miðvikudagskvöldum yfir sumarið og hafa glæsikerrurnar sem þar eru sýndar vakið athygli.

Sóley Björk Stefánsdóttir fulltrúi V-lista greiddi atkvæði gegn tillögunni.

Nýjast