Tryggja verður sjálfstæði fatlaðra einstaklinga

Bergur Þorri Benjamínsson.
Bergur Þorri Benjamínsson.

Einar Brynjólfsson skrifar grein um stöðu öryrkja og beinir augljóslega orðum til frambjóðenda Sjálfstæðisflokks. Nú er það þannig að Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki farið með félagsmálaráðuneytið síðan Gunnar Thoroddsen fór með ráðuneytið 28. ágúst 1974 - 1. september 1978.

Reyndar var Þorsteinn Víglundsson í Sjálfstæðisflokknum áður en hann gekk til lið við Viðreisn en hann var með ráðuneytið þann stutta tíma sem Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar Framtíðar lifði árið 2017. 

Samt er umræðan þannig að öll þau bútasaumuðu kerfi sem nú valda örykjum ama hafi verið smíðuð í tíð ráðherra Sjálfstæðisflokks.  Það þarf hins vegar að laga þau kerfi. Ein tillaga sem lögð er áhersla á af hálfu Sjálfstæðisflokks er endurkomuleið inn á vinnumarkaðinn. Hún samrýmist því sem fram kom rannsókn sem VARÐA lét gera fyrir ÖBÍ. Þar kemur fram að 20% fólks sem er á örorkulífeyri treystir sér til að fara aftur á vinnumarkaðinn í hlutastarf. Þarna er rakið tækifæri til að byrja á og finna þennan hóp og hjálpa honum til sjálfshjálpar. Ég ætla að við Einar séum sammála um það ?  

Uppstokkun á tryggingakerfi öryrkja verður ekki gerð nema í nánu samráði við hagsmunasamtök þeirra og í samvinnu við lífeyrissjóðina. Sjálfstæðisflokkurinn vill að í þeirri vinnu verði byggt á þeim meginsjónarmiðum að öryrkjar njóti þess og hafi ávinning af því að afla sér tekna, meðal annars með endurkomusamningum í fyrra kerfi og einnig verði að tryggja öryrkjum sem hafa enga möguleika til atvinnuþátttöku .  

Afnema þarf krónu á móti krónu skerðingu og viðmiðið þarf að miðast við að tryggja lágmarkstekjur til lífsviðurværis án þess að draga úr hvötum til sjálfsbjargar. Einfalda verður kerfið og gera það gagnsærra og skiljanlegra.   

Víða vantar stefnu og skilning á málefnum fatlaðra, allt frá grunnskóla- og framhaldsmenntun og áfram. En úr því verður ekki leyst nema með aðkomu allra ráðuneyta. Bæta verður samráð við hagsmunasamtök fatlaðra, samtök atvinnulífsins, auk verkalýðshreyfingarinnar.     

Tryggja verður sjálfstæði fatlaðra einstaklinga. Þeir eiga rétt til að stýra sinni þjónustu sjálfir m.a. með notendastýrðri persónulegri aðstoð (NPA). Fjölga þarf NPA-samningum. Flutningur þessa málaflokks frá ríki til sveitarfélaga  hefur skapað erfiðleika í tengslum við fjármögnun þjónustunnar, sem þarf að leysa.  

Það er nefnilega miklu styttra á milli flokka en menn halda. Hættum að reyna benda á aðra flokka og láta í veðri vaka að þeir sé öxulveldi hins illa, sérstaklega gagnvart öryrkjum.  

Virða á rétt allra til aðgengis að samfélaginu, á öllum sviðum þess. Það getum við verið öll sammála um! 

Höfundur, Bergur Þorri Benjamínsson

er formaður Sjálfsbjargar og skipar 9. sæti

á lista Sjálfstæðisflokks í SV kjördæmi.


Athugasemdir

Nýjast