Leikfélag Akureyrar, í samstarfi við Borgarleikhúsið, frumsýndi sjóræningjaleikritið Gulleyjuna í lok janúar og er 6. sýningarhelgin að ganga í garð. Hingað til hefur verið uppselt á hverja einustu sýningu og eru gagnrýnendur sammála um að Gulleyjan sé þrælskemmtilegt og bráðfjörugt fjölskylduleikrit. Föstudagskvöldið 3. mars er von á fimm þúsundasta sýningargestinum og mun Leikfélag Akureyrar taka á móti honum með pomp og prakt. Um leið vill Leikfélagið hvetja bæjarbúa til að taka þátt í gleðinni með því að flagga sjóræningjafánum líkt og gert var um frumsýningarhelgina.