Samtök atvinnulífsins sætta sig ekki við núverandi ástand og horfur í atvinnumálum. Með markvissum aðgerðum er hægt að koma efnahagslífinu á rétta braut. Efnahagsleg stöðnun er heimatilbúinn valkostur. Það er löngu tímabært að atvinnumálin fái forgang, segir í yfirlýsingu SA ti Alþingis. Lítill hagvöxtur, skortur á framkvæmdum og fjárfestingum, atvinnuleysi og brottflutningur fólks tefur endurreisn og rýrir lífskjör fólks í landinu.
Árið 2011 er enn eitt ár vannýttra tækifæra. Eitthvað annað stefnan er fullreynd. Samtök atvinnulífsins benda á atvinnuleiðina. Markvissa leið fjárfestinga og framkvæmda, sem dregur úr atvinnuleysi og eykur hagvöxt. Samtök atvinnulífsins hvetja Alþingi að taka nú frumkvæði og láta framsæknar aðgerðir í atvinnumálum hafa algjöran forgang. Mörkum skýra stefnu, eyðum óvissu undirstöðuatvinnugreina. Leysum úr læðingi uppsafnaða fjárfestingarþörf og sköpum ný atvinnutækifæri í byggðum landsins. Sækjum fram, rjúfum kyrrstöðuna og virkjum þua tækifæri sem blasa við, segir ennfremur í yfirlýsingunni.