Vinna við deiliskipulag vegna lagningar Dalsbrautar verði hafin

Meirihluti skipulagsnefndar Akureyar samþykkti á fundi nefndarinnar í vikunni að fela skipulagsstjóra að setja í gang vinnu við deiliskipulag Dalsbrautar. Jafnframt skipar nefndin Helga Snæbjarnarson, Odd Helga Halldórsson, Pétur Bolla Jóhannesson og Helga Má Pálsson í verkefnislið deiliskipulagsins.  

Auður Jónasdóttir (V-lista) greiddi atkvæði gegn tillögunni og óskaði bókað að hún telji ótímabært að setja þessa vinnu í gang og að óásættanlegt sé að engin kona skuli vera skipuð í verkefnisliðið. Pálmi Gunnarsson fulltrúi A-lista sat hjá.

Nýjast