Jón Már Héðinsson skólameistari Menntaskólans á Akureyri segir að gerðar séu miklar kröfur til starfsfólks skólanna. Hann ræddi meðal annars um mikilvægi þess að hækka laun kennara á skólahátið MA.
Menntun er mikilvæg, svo mikilvæg að hún þykir sjálfsögð. All nokkrir verðandi stúdentar eru efni í mjög góða kennara þeir þurfa að fá þau skilaboð að kennarastarfið er mikils metið. Það þarf að hækka grunnlaun framhaldsskólakennara og samkomulag þarf að nást um nýja vinnutímaskilgreiningu þeirra. Starf í skólum á að vera vel launað því það eru gerðar miklar kröfur til starfsfólks skólanna, sagði Jón Már í ræðu sinni á skólahátíðinni.