Víða óveður og erfið færð

Hálkublettir eru enn sumstaðar á Norðurlandi, einkum útvegum. Óveður er á Vatnsskarði, Siglufjarðarvegi og Hámundarstaðahálsi. Hólasandur er ófær. Hálka er á Mývatnsöræfum. Á Vesturlandi er óveður við Hafnarfjall og í Borgarfirði áleiðis upp í Reykholt. Óveður er á norðanverðu Snæfellsnesi og Bröttubrekku. Á Holtavörðuheiði er óveður og krapasnjór.  

Skynsamlegt getur verið að gera sér krók vestur í Dali til að sleppa við að fara heiðina. Tafir eru við Borgarfjarðarbrú vegna umferðaróhapps. Á Vestfjörðum er flughált frá Þorskafirði vestur í Flókakalund en Klettsháls er raunar þungfær. Óveður og flughált er á Kleifaheiði, Hálfdáni, Gemlufallsheiði og í Súgandafirði. Þá er einnig óveður á Mikladal og í Ísafjarðardjúpi. Mokstur er að hefjast á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum.
Á Austurlandi eruhálkublettir á nokkrum vegum en greiðfært með ströndinni frá Reyðarfirði suður um. Hins vegar er víða nokkuð hvasst á Austur- og Suðausturlandi og full ástæðia til að fylgjast vel með veðri. Ekkert ferðaveður er milli Hafnar og Djúpavogs.

Það eru hálkublettir á fáeinum útvegum á Suðurlandi en hálka á Þingvallavegi.
Vegfarendur eru beðnir að hafa í huga að víða er ekki mokstur, eða önnur þjónusta á vegum, á kvöldin og nóttunni. Raunar eru sumir vegir ekki í þjónustu nema fáa daga í viku, segir á vef Vegagerðarinnar.

Nýjast