Verður prófsteinn á liðið

Þórsarar eiga mikilvægan leik fyrir höndum í kvöld er liðið sækir Skallagrím heim í Borgarnes kl. 19:15 í 1. deild karla í körfubolta. Liðin eru bæði í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni ásamt FSu, Valsmönnum og Breiðabliki en fjögur lið komast í úrslitakeppnina.

Þar stendur Þór vel að vígi með 20 stig í öðru sæti deildarinnar. Hin fjögur liðin hafa öll 16 stig í næstu sætum en eiga þó leik til góða á norðanmenn.

„Við megum ekkert gefa eftir og þessi leikur verður gott próf á okkar lið,” segir Sigurður Grétar Sigurðsson aðstoðarþjálfari Þórs.

Nánar er rætt við Sigurð Grétar í Vikudegi.

Nýjast