Verða Akureyringar deildarmeistarar i kvöld?

Átjánda umferð N1-deildar karla í handbolta verður leikinn í kvöld og í Íþróttahöllinni á Akureyri fá heimamenn Hauka í heimsókn kl. 19:00. Haukar eru í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni í vor. Liðið vann mikilvægan eins marks sigur gegn HK í síðustu umferð á meðan Akureyri náði aðeins jafntefli gegn botnliði Selfoss á útivelli. Akureyringar hafa þó fimm stiga forystu á toppi deildarinnar með 28 stig en Haukar eru komnir upp í þriðja sætið með 19 stig þegar fjórar umferðir eru eftir.

Vinni Akureyri í kvöld og FH tapar gegn Val er deildarmeistaratitillinn í höfn hjá norðanmönnum. 

Atli Hilmarsson, þjálfari Akureyrar, reiknar með erfiðu liði Hauka í kvöld sem þurfa nauðsynlega á tveimur stigum að halda.

„Þeir eru að berjast um að komast í úrslitakeppnina og verða án efa erfiðir. Við þurfum hins vegar að vera með einbeitinguna á fullu. Það er ekkert komið í hús hjá okkur ennþá og við þurfum að halda áfram að ná í stig," segir Atli.

Aðrir leikir kvöldsins í N1-deildinni eru:

kl. 19.30 Fram – Selfoss | Framhús
kl. 19.30 FH – Valur | Kaplakriki
kl. 19.30 Afturelding – HK | Varmá

Nánar er hitað upp fyrir leik Akureyrar og Hauka í kvöld og rætt við Atla í Vikudegi í dag.

Nýjast