Kona á fimmtudagsaldri velti bíl sínum útaf veginum við Böðvarsnes í Fnjóskadal um eittleytið í nótt með þeim afleiðingum að bíllinn endaði á hvolfi ofan í Fnjóská. Konan, sem var ein í bílnum, náði að koma sér sjálf út úr bílnum og gekk að næsta bæ þar sem hún hringdi í lögregluna. Þaðan var hún flutt með sjúkrabifreið til aðhlynningar á Sjúkrahúsið á Akureyri en ekki er ljóst hversu alvarleg meiðsl hennar eru. Tildrög slyssins eru óljós en samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Akureyri er um að ræða malarveg sem er erfiður yfirferðar. Bíllinn er talinn gjörónýtur.