Veittist að dómurum-Hugsanlega sviptur verðlaunum og dæmdur í keppnisbann

Það er á fleiri stöðum en í handboltanum sem taka þarf á agavandamálum þar sem íþróttamenn frá Akureyri koma við sögu þessa dagana. Nú hefur blossað upp agavandamál vegna framgöngu Sigurkarls Aðalsteinssonar á Íslandsmóti líkamsræktarmanna sem fram fór í Háskólabíói um páskana.

Sigurkarl lenti í öðru sæti í vaxtarrækt á eftir Magnúsi Bess Júlíussyni en var ekki par sáttur við þá niðurstöðu. Í kjölfarið veittist hann að dómurum með grófum hætti og hinum ýmsu formælingum. Þykir Sigurkarl hafa sýnt bæði dómurum, íþróttinni og ekki síst öðrum keppendum lítilsvirðingu og dónaskap með þessu framferði. 

Sambærileg atvik hafa ekki komið upp hérlendis áður á mótum Alþjóðasambands líkamsræktarmanna en það er ljóst að um gróft brot á siðareglum sambandsins er að ræða. Málið hefur verið sent erlendis til meðferðar aganefndar sem væntanlega mun senda frá sér niðurstöðu innan skamms.

Ekki er ólíklegt að niðurstaðan verði tímabundið keppnisbann og hugsanlega svipting verðlauna. Þetta kemur fram á fitness.is.

Nýjast