Vaðlaheiðargöng á dagskrá Alþingis í dag

Eftir hádegi í dag verður 1. umræða á Alþingi um frumvarp til laga um heimild til handa ráðherra f.h. ríkissjóðs til að fjármagna gerð jarðganga undir Vaðlaheiði. “Í þeim tilgangi að tengja Eyjafjörð og Fnjóskadal með jarðgöngum um Vaðlaheiði er ráðherra f.h. ríkissjóðs heimilt að undirrita lánasamning við Vaðlaheiðargöng hf. um lán til gangaframkvæmda fyrir allt að 8.700 m.kr., miðað við verðlag í lok árs 2011. Félagið sjálft, eignir þess og tekjustreymi skulu vera fullnægjandi tryggingar fyrir láni skv. 1. gr. Lánsfjárhæð skal greiðast félaginu í samræmi við framvindu verks og í samræmi við lánasamning skv. 1. mgr. 1. gr. laga þessara. Gera skal grein fyrir lánsfjárhæð hvers árs í frumvarpi til fjárlaga fyrir það ár,” segir í 1. grein frumvarpsins.




Nýjast