Björgunarsveitin Dalbjörg í Eyjafirði hefur tekið þátt í björgunaraðgerðum í kjölfar óveðursins í síðustu viku. Alls hafa meðlimir sveitarinnar skilað yfir 480 vinnustundum.
Um tuttugu manns hafa tekið þátt í útköllum á vegum sveitarinnar og áætlað er að tæki sveitarinnar hafi verið keyrð yfir 3200 kílómetra. Enginn hefur farið varhluta af því sem gengið hefur á hér allt í kringum okkur síðustu daga. Björgunarsveitir og bændur hafa leitað eftir fé víða og höfum við í Dalbjörg tekið þátt í því á fullu, segir í tilkynningu frá sveitinni.