Tölfræðin er því ekki með Þórsurum í kvöld sem spila á heimavelli hvað það varðar en tölfræðin hefur ekki unnið leiki hingað til.
Valur vann fyrsta leikinn nokkuð sannfærandi á Akureyri sl. föstudag, 91:82, en Þórsarar knúðu fram oddaleik með dramatískum útisigri í Vodafonehöllinni sl. mánudag þar sem norðanmenn unnu með þriggja stiga mun, 76:73, eftir að hafa verið undir mest allan tímann.
Það eru því allar líkur á hörkuleik í Höllinni í kvöld en leikurinn hefst sem fyrr segir kl. 19:15.