Strax að lokinni keppni í undanúrslitum sl. föstudagskvöld, þar sem lið Akureyrar lagði lið Reykjanesbæjar að velli, var það nefnt hvort ekki væri ástæða til að færa úrslitakeppnina norður. Þá kom fram að það væri ekki hægt, m.a. af tæknilegum ástæðum. Það hefur nú breyst og samkvæmt heimildum Vikudags fer viðureignin fram í Hofi.