Oddur Helgi Halldórsson formaður stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar segir að ekki hafi verið tekin endanleg ákvörðun um hvort byggingarframkvæmdir verði boðnar út sem ein heild eða í smærri hlutum. Einnig verður ráðist í framkvæmdir við seinni áfanga Naustaskóla á þessu ári og segir Oddur Helgi að verkið verði boðið út í nokkrum áföngum. Vinna við uppsteypu verður boðin út í byrjun næsta mánaðar, innanhúsgerð í lok þessa árs og lóðaframkvæmdir á árinu 2013. Gert er ráð fyrir að sérgreinaálma verði tilbúin árið 2012 og að öllum framkvæmdum verði lokið fyrir skólabyrjun haustið 2014. Kostnaður við 2. áfanga Naustaskóla er áætlaður um 1.300 milljónir króna.
Bæjarráð samþykkti á síðasta ári að ráðast í framkvæmdir við endurnýjun og viðhald á stúkunni á Akureyrarvelli. Markmið með endurbótum er skapa aðstöðu fyrir KA, þar sem framkvæmdum við endurbætur og byggingu stúku á KA svæði var frestað síðla árs 2008. Oddur Helgi segir að stefnt sé að því að ýmsir verkþættir og innréttingar verði boðnir út seinni hluta þessa mánaðar en að heildarframkvæmdum ljúki haustið 2011. Heildarkostnaður við framkvæmdinda er áætlaður um 80 milljónir króna og þar af koma 10 milljónir króna úr mannvirkjasjóði KSÍ. Einnig hefur verið ákveðið að endurnýja gólfið í íþróttasal KA-heimilisins. Raðgert er að sú vinna fari fram í sumar og verði lokið fyrir skólabyrjun næsta haust.
Þá verður ráðist í umfangsmiklar framkvæmdir á lóð við Þrastarlund á árinu. Akureyrarbær og Félags- og tryggingamálaráðuneytið undirrituðu samning í lok síðasta árs um viðbyggingu á lóð við Þrastarlund 5. Markmið er að bæta þjónustu við fatlað fólk á landsvísu. Akureyrarbær tekur að sér að byggja þrjár íbúðir á lóð númer 5 og tengja húsið núverandi byggingu á lóð númer 3 við sömu götu. Um er að ræða nýbyggingu samtals 255 m² að brúttó stærð. Framkvæmdasjóður fatlaðra greiddi Akureyrarkaupstað áætlaðan kostnað við framkvæmdina, samtals 98 milljónir króna, í einni greiðslu í byrjun árs 2011. Oddur Helgi segir að hönnun sé komin í gang, ráðgert sé að bjóða verkið út í maí í vor og að húsnæðið verði tilbúið til notkunar í lok maí á næsta ári.
Af öðrum framkvæmdum má nefna að skipta á um glugga í A-álmu Glerárskóla, skipta um þakklæðningu í grunnskólanum í Hrísey og skipta um þakklæðningu á báðum raðhúsunum við Hlíð.