Skráning í Lífshlaupið, fræðslu-og hvatningarverkefni ÍSÍ, er hafin en það verður ræst í fjórða sinn
miðvikudaginn 2. febrúar. Um 13.300 manns tóku þátt í Lífshlaupinu á síðasta ári og fjölgaði þátttakendum
um rúmlega 4.000 á milli ára. Markmið Lífshlaupsins er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig og huga að sinni hreyfingu í
frítíma, vinnu, skóla og við val á ferðamáta.
Lífshlaupið höfðar til allra landsmanna og er hægt að skrá þátttöku á vefsíðu Lífshlaupsins www.lifshlaupid.is en
þar gefst þátttakendum kostur á að taka þátt í:
- vinnustaðakeppni frá 2. - 22. febrúar, fyrir 16 ára og eldri
- hvatningarleik fyrir grunnskóla frá 2. - 22. febrúar, fyrir 15 ára og yngri
- einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið.
Skrá má alla hreyfingu inn á vefinn svo framarlega sem hún nær ráðleggingum Lýðheilsustöðvar um hreyfingu. Börn og unglingum
er ráðlagt að hreyfa sig í a.m.k. 60 mínútur á dag og fullorðnir a.m.k. 30 mínútur á dag. Nú þegar hafa 69
vinnustaðir skráð sig til leiks. Samstarfsaðilar ÍSÍ vegna Lífshlaupsins eru: velferðarráðuneytið,
mennta-og menningarmálaráðuneytið, Lýðheilsustöð, Skýrr, Rás 2 og Ávaxtabíllinn.