Um 100 hljóðfæraleikarar á tónleikum í Hofi í kvöld

Í gær kom til Akureyrar færeysk lúðrasveit, í tengslum við verkefni sem Tónlistarskólinn á Akureyri er að vinna í samstarfi við Tónlistarskóla Færeyja. Í morgun æfðu nemendur úr Stórsveit Tónlistarskólans á Akureyri með færeysku lúðrasveitinni og í kvöld kl. 21.00  mun sameiginleg hljómsveit, skipuð um 100 hljóðfæraleikurum, spila á tónleikum í Hamraborg í Hofi.

Það er fyrrum stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Bernharður Wilkinson, sem hefur tekið að sér að stjórna þessari risasveit á tónleikunum í kvöld. Allir eru velkomnir og er aðgangur ókeypis. Í maí næstkomandi fara Stórsveit og Grunnsveit Tónlistarskólans á Akureyri í heimsókn til Færeyja til að spila á færeyskri tónlistarhátíð. Þar mun Stórsveitin spila í Norræna húsinu í Þórshöfn með færeyskri jazz-sveit og Grunnsveitin spilar svo með sambærilegri færeyskri sveit.

Nýjast