Um 100 einstaklingar á biðlista hjá Tónlistarskólnum á Akureyri

Málefni Tónlistarskólans á Akureyri voru til umfjöllunar á síðasta fundi skólanefndar. Kolbrún Jónsdóttir starfandi skólastjóri gerði grein fyrir stöðu skólans og svaraði fyrirspurnum nefndarmanna. Í máli hennar kom fram að um 100 einstaklingar hafi verið á biðlista í vetur. Eftirspurnin er mikil á ákveðin hljóðfæri s.s. fiðlu, píanó og gítar.  

Búið er að auglýsa nokkrar stöður, þar sem í þeim sitja lausráðnir kennarar og þá eru nokkrir að fara í leyfi af ýmsum ástæðum. Það lítur vel út með ráðningar. Fyrir fund skólanefndar var lögð tillaga frá stjórnendum Tónlistarskólans um nýtt fyrirkomulag á forskólakennslu í tónlist fyrir börn á aldrinum 6 - 7 ára. Gert er ráð fyrir því að kennslan fari fram í 6 barna hópum á frístundatíma barnanna og liggur fyrir samþykki fyrir því meðal skólastjóra að kennslan fari fram í tónmenntastofum grunnskólanna. Reiknað er með því að gjald foreldra fyrir veturinn verði kr. 26.655, sem á að standa undir kostnaði við kennsluna. Fyrir fundinn voru einnig lögð drög að námskrá. Skólanefnd samþykkti fyrirliggjandi tillögu.

Einnig var lögð fyrir fund skólanefndar tillaga frá stjórnendum Tónlistarskólans um nýja námsgrein, upptökutækni. Námið er hugsað sem tilraunaverkefni næsta vetur og felst í að læra upptökutækni í hljóðveri skólans. Sérmenntaður kennari í upptökutækni verður ráðinn í verkefnið. Nemendur mæta tvisvar í viku, 1½ tíma í senn, samtals 3 tíma á viku. Nemendur þurfa að borga u.þ.b. kr. 90.000 fyrir veturinn sem skiptist niður á 8 gjalddaga og er pláss fyrir 6 nemendur. Gjaldið á að standa undir kostnaði við námið. Eingöngu verður lagt upp með einn hóp til að byrja með. Skólanefnd samþykkti fyrirliggjandi tillögu.

Nýjast