Oddeyrin var með 435 tonna afla upp úr sjó, grálúðu og karfa en Snæfell var með um 570 tonn upp úr sjó, karfa og grálúðu. Aflaverðmæti hvors skips er um 160 milljónir króna. Kristján Vilhelmsson framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja segir að Oddeyrin haldi á sömu mið fyrir vestan land á morgun laugardag. Snæfellið heldur hins vegar í Barentshafið á mánudag, þar sem Samherji á mjög lítinn kvóta eftir á heimamiðum. Fjölveiðiskip Samherja, Vilhelm Þosteinsson EA, hefur legið við bryggju á Akureyri sl. þrjár vikur eða frá því að loðnuvertíð lauk. Kristján segir að þar sem kolmunakvótinn hafi hrunið verði Vilhelm Þorsteinsson aðgerðarlaus í tvo mánuði, eða til loka maímánaðar. Þá fer skipið til veiða á norsk-íslensku síldinni og markíl. Á meðan skipið er í höfn er unnið við hefðbundið viðhald.