Í gær tvísprakk á sjúkrabíl sem fór í útkall í Bárðardal að sækja sjúkling. Senda þurfti eftir bíl frá Akureyri til a klára sjúkraflutninginn. Einar Jónasson sjúkrabúlstjóri á Húsavík segir í samtali við héraðsfréttavefinn 641.is að á þrjátíu ára ferli sínum sem sjúkrabílstjóri hafi hann aldrei áður lent í svona nokkru.
Einnar var sendur í útkall í suð-austanverðan Bárðardal en þegar verið var að setja sjúklinginn í bílinn tók hann eftir að sprungið var á bílnum, svo hann skipti um og setti varadekkið undir. Þegar hann var kominn til móts við Arndísarstaði sprakk aftur og varð því að kalla eftir bíl frá Akureyri.
Sjúklingurinn var sem betur fer ekki alvarlega veikur þannig að tafirnar reyndust ekki lífshættulegar.
Bíll frá Húsavík fór svo í gærkvöldi með aukadekk sem sett voru undir sjúkrabílinn.