Þeir sem fá úthutað úr sjóðnum á Akureyri eru Skógræktarfélag Akureyrar og Ferðafélagið Fjörðungur. Ferðafélagið Fjörðungur fær styrk til viðhalds og byggingar skála á Gjögraskaga, Látrum, Þönglabakki og Keflavík. Skógræktarfélagið hins vegar fær 300 þúsund króna framlag til að bæta aðgengi að Steinagerðisvelli, en það er svæðið þar sem leiktæki og grillaðstaðan er í Kjarnaskógi. Hæsta styrkinn úr Pokasjóði fékk Vímulaus æska í Reykjavík, eða 5 milljón krónur. Það framlag var vegna sjálfsstyrkingarnámskeiðs fyrir börn og unglinga.