30. nóvember, 2010 - 17:12
Þrír fulltrúar af landsbyggðinni náðu kjöri í stjórnlagaþingskosningunum á laugardag en úrslit voru kynnt fyrr í dag.
Allir landsbyggðarfulltrúarnir eru frá Norðurlandi, tveir frá Akureyri, Dögg Harðardóttir og Erlingur Sigurðarson og Ari Teitsson úr
Þingeyjarsveit. Alls 14 fulltrúar eru frá Reykjavík, þrír úr Kópavogi og jafn margir úr Garðabæ, einn frá Hafnarfirði
og einn af Álftanesi.
Ekki kom til þess, að beita þyrfti lagaákvæðum til að jafna kynjahlutfall kjörinna fulltrúa, karlarnir eru 15 og konurnar 10. Þorvaldur
Gylfason, prófessor, fékk flest atkvæði í kosningunum á laugardag, 7.192 talsins. Ómar Ragnarsson, fjölmiðlamaður, og Salvör Nordal,
forstöðumaður Siðfræðistofnunar, komu næst þar á eftir. Eftirtaldir aðilar náðu kjöri á stjórnlagaþingið:
- Andrés Magnússon, Kópavogi
- Ari Teitsson, Þingeyjarsveit
- Arnfríður Guðmundsdóttir, Kópavogi
- Ástrós Gunnlaugsdóttir, Garðabæ
- Dögg Harðardóttir, Akureyri
- Eiríkur Bergmann, Reykjavík
- Erlingur Sigurðarson, Akureyri
- Freyja Haraldsdóttir, Garðabæ
- Gísli Tryggvason, Kópavogi
- Guðmundur Gunnarsson, Reykjavík
- Illugi Jökulsson, Reykjavík
- Inga Lind Karlsdóttir, Garðabæ
- Katrín Fjelsted, Reykjavík
- Katrín Oddsdóttir, Reykjavík
- Lýður Árnason, Hafnarfirði
- Ómar Ragnarsson, Reykjavík
- Pawel Bartoszek, Reykjavík
- Pétur Gunnlaugson, Reykjavík
- Salvör Nordal, Reykjavík
- Silja Bára Ómarsdóttir, Reykjavík
- Vilhjálmur Þorsteinsson, Reykjavík
- Þorkell Helgason, Álftanesi
- Þorvaldur Gylfason, Reykjavík
- Þórhildur Þorleifsdóttir, Reykjavík
- Örn Bárður Jónsson, Reykjavík