Tveir voru fluttir á slysadeild Sjúkrahússins á Akureyri á fimmta tímanum í nótt eftir að maður hafði ráðist á
þá og veitt þeim áverka. Atvikið átti sér stað á Strandgötu og var árásarmaðurinn horfinn þegar
lögreglumenn komu á vettvang. Hann er ófundinn og málsatvik eru enn óljós.
Að öðru leiti fór skemmtanahald vel fram í bænum í gærkvöldi, segir á visir.is.