Tryggja þarf góðar flugsamgöngur með flugvelli í Vatnsmýrinni til framtíðar

Aðalfundur Eyþings, Samtaka sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslu, var haldinn á Húsavík um síðustu helgi. Að þessu sinni var áherslan á umfjöllun um stefnumörkunina Ísland 2020 og sóknaráætlanir landshluta innan hennar, auk þess sem fjallað var um um breytt vinnuumhverfi og viðfangsefni landshlutasamtaka sveitarfélaga. Fundurinn telur að sóknaráætlunin geti orðið mikilvægur vegvísir hvað varðar þróun atvinnulífs og samfélags á svæðinu gangi markmið áætlunarinnar eftir.

Vinna í nefndum beindist fyrst og fremst að því að skilgreina hvaða verkefni og áherslur séu mikilvægastar miðað við framtíðarsýn og framþróun landshlutans í heild. Rétt til setu á aðalfundi Eyþings áttu 40 fulltrúar úr 13 sveitarfélögum með alls um 29.000 íbúa.

Á fundinum voruu samþykktar fjölmargir ályktanir um ýmis mál. Aðalfundurinn leggur m.a. áherslu á nauðsyn þess að tryggja góðar flugsamgöngur innanlands með flugvelli í Vatnsmýrinni til framtíðar. Þá lýsir fundurinn sterkum vilja til þess að sveitarfélög á Norðurlandi verði sýnilegir þátttakendur í verkefninu Ísland allt árið og skorar á sveitarstjórnir að leggja til það fjármagn sem þarf.  Jafnframt verði allar fjárfestingarhugmyndir, jafnt erlendra sem innlendra aðila, sem lúta að eflingu heilsársferðaþjónustu á svæðinu skoðaðar með jákvæðum hætti.
Fundurinn leggur áherslu á nauðsyn þess að auka hlutdeild í störfum á vegum ríkisins á starfssvæði Eyþings. Áhersla er lögð á nauðsyn þess að hringvegurinn verði styttur. Fyrir liggi að stytting hans sé þjóðhagslega hagkvæm og að framkvæmdin þjóni því heildarhagsmunum íbúa og fyrirtækja í landinu. Aðalfundurinn leggur áherslu á að farið verði verkefni sem meðal annarra eru mikilvæg fyrir framþróun og hagsmuni landshlutans í heild. Má þar efna iðnaðarveg milli Húsavíkurhafnar og iðnaðarsvæðis að Bakka,  flughlað á Akureyrarflugvelli, Dettifossveg frá Dettifossi í Ásbyrgi, snjóflóðavarnir milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar og nýja brú á Jökulsá á Fjöllum.
Aðalfundurinn leggur þunga áherslu á að stjórnvöld, í samvinnu við heimafólk, vinni áfram markvisst að undirbúningi nýtingar þeirrar orku sem er að finna á háhitasvæðum í Þingeyjarsýslum. Það er nauðsynlegt að leggja grunn að uppbyggingu nýrrar atvinnustarfsemi á svæðinu og skapa þannig forsendur góðra lífskjara íbúa og jákvæðrar byggðaþróunar. Þá krefst fundurinn þess að komið verði á flutningsjöfnunarkerfi til þess að draga úr þeim aðstöðumun sem nú er milli fyrirtækja og íbúa höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar. Áherslu er á mikilvægi þess að efla almenningssamgöngur í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum og þá leggur fundurinn áherslu á nauðsyn þess að góðar ferjusamgöngur við Grímsey og Hrísey verði hluti af almenningssamgöngum. Fundurinn bendir á mikilvægi þess að fjármagn fylgi tilfærslu málaflokksins frá ríki til sveitarfélaga.

Fundurinn mótmælir harðlega lækkun á aukaframlagi Jöfnunarsjóðs á þessu ári úr milljarði í 700 milljónir og áformum um að lækka framlagið en frekar.  Með því að fjármagna framlag til Álftaness af aukaframlagi eins og ráðgert er, lækka framlög til annarra sveitarfélaga í erfiðri stöðu.  Fundurinn beinir því til stjórnvalda að leita annarra leiða til að leysa fjárhagsvanda Álftaness.

Aðalfundur Eyþings lýsir ánægju sinni með þá vinnu sem unnin hefur verið undir merkjum sóknaráætlunar 20/20, og telur mikilvægt að farið verði í þau verkefni sem sveitarfélögin hafa komið sér saman um að séu forgangsverkefni. Verkefnin eru; uppbygging innviða vegna orkufreks iðnaðar, uppbygging við Sjúkrahúsið á Akureyri, Norðurslóðamiðstöð Íslands, flughlað á Akureyrarflugvelli, Dettifossvegur, fjarskipti og gagnaflutningar og íþróttabærinn Akureyri.

Nýjast