Á fundi bæjarráðs Akureyrar nýlega var lagt fram erindi frá formanni kjörstjórnar Akureyrar vegna komandi forsetakosninga þann 30. júní nk. Þar kemur fram tillaga kjörstjórnar um að Akureyrarkaupstað verði skipt í tólf kjördeildir, tíu á Akureyri, ein í Hrísey og ein í Grímsey. Gerð er tillaga um að á Akureyri verði kjörstaður í Verkmenntaskólanum á Akureyri, í Hrísey verði kjörstaður í Hríseyjarskóla og að í Grímsey verði kjörstaður í félagsheimilinu Múla. Lagt er til að tveir kjörklefar verði í hverri kjördeild á Akureyri, Hrísey og í Grímsey. Þá hefur kjörstjórn ennfremur ákveðið að leggja til við bæjarráð að kjörfundur standi frá klukkan 09:00 til 22:00 á Akureyri, en frá klukkan 10:00 til 18:00 í Hrísey og í Grímsey. Bæjarráð samþykkti tillögur kjörstjórnar.