25. nóvember, 2010 - 11:44
Á fundi skipulagsnefndar Akureyrarbæjar í vikunni lagði skipulagsstjóri fram tillögu um breytingu á tímabundinni undanþágu á
hluta greinar í almennum byggingarskilmálum vegna ástands í þjóðfélaginu. Í núverandi hluta greinarinnar kemur fram að eigi
síðar en 18 mánuðum eftir veitingu byggingarleyfis skal lóðarhafi hafa gert hús og bílgeymslu fokhelt og frágengið að utan, jafnað og
grætt lóð og gengið frá lóðarmörkum.
Tillaga að breytingu á tímabundinni undanþágu hljóði svo:
"Eigi síðar en 30 mánuðum eftir veitingu nýrra byggingarleyfa og eigi síðar en 60 mánuðum eftir veitingu áður útgefinna
byggingarleyfa skal lóðarhafi hafa gert hús og bílgeymslu fokhelt og frágengið að utan, jafnað og grætt lóð og gengið frá
lóðarmörkum." Skipulagsnefnd samþykkti að leggja til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt og að undanþágan gildi
í eitt ár.