Tilvalið að senda póstkort með afmæliskveðju

Póstkassinn í anddyri Amtsbókasafnsins. Mynd af vef Akureyrarbæjar.
Póstkassinn í anddyri Amtsbókasafnsins. Mynd af vef Akureyrarbæjar.

Í tilefni af 150 ára afmæli Akureyrarkaupstaðar er öllum vinum bæjarins nær og fjær, boðið að senda Akureyri póstkort með afmælikveðju. Tilvalið er að setjast niður og föndra heimagert kort með persónulegri kveðju til höfuðstaðar hins bjarta norðurs. Settur hefur verið upp sérstakur póstkassi í anddyri Amtsbókasafnsins sem fólk getur stungið kortunum í og einnig má senda þau á Amtsbókasafnið á Akureyri, Brekkugötu 17, 600 Akureyri. Í desember verður haldin sérstök sýning á afmæliskortunum á Amtsbókasafninu og mun þar án efa kenna ýmissa grasa. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.

Nýjast