Ferðafólk heimsækir Grímsey allan ársins hring en flestir koma þangað yfir hásumarið. Ekki er algengt að gestkvæmt sé í eyjunni yfir jól eða áramót en að þessu sinni voru þýsk hjón í Grímsey um áramótin og tóku virkan þátt í fögnuði eyjarskeggja. Hjónin voru þrjár nætur í eyjunni og líkaði vel. Þau mættu á brennuna klukkan 20 á gamlárskvöld í ágætis veðri og skutu upp flugeldum með heimafólki.
Síðan fögnuðu þau nýju ári út af fyrir sig á gistiheimilinu Básum og vildu fá fisk í hátíðarmatinn en ekki kjötmeti eins og þó mun vera algengast meðal Íslendinga. Þessi áramótin dvöldu færri en oft áður í Grímsey eða 44 sem eiga þar heimili, auk 10 gesta. Með skráð lögheimili í Grímsey eru núna 87 manns. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.