Þurfum að fá meiri stöðugleika

Íslandsmótið í 1. deild karla í knattspyrnu hefst um helgina en fjórir leikir fara fram í kvöld og tveir á laugardaginn. KA byrjar tímabilið á útileik gegn Leikni R. kl. 20:00 í kvöld.

 

Lið KA er nú eini fulltrúi Norðurlands í deildinni, þar sem nágrannar þeirra í Þór spila sem kunnugt er í efstu deild. KA-liðið kemur nokkuð breytt til leiks í sumar frá því í fyrra. Þjálfararnir tveir, þeir Dean Martin og Steingrímur Örn Eiðsson, eru báðir horfnir á braut. Gunnlaugur Jónsson hefur tekið við sem aðalþjálfari liðsins en hann þjálfaði Valsmenn í fyrra sumar. Honum til aðstoðar verður Ingvar Már Gíslason.

 

„Þetta er bara spennandi verkefni og það er tilhlökkun í mér og hópnum að hefja tímabilið,” segir Gunnlaugur við Vikudag um komandi tímabil. Gunnlaugur segir markmið KA í sumar vera fyrst og fremst að festa liðið betur í sessi í deildinni, en liðið hafnaði í 9. sæti sl. sumar.

 

„Við þurfum að fá betri stöðugleika í liðið og sleppa við helsta strögglið á botninum. Það er það fyrsta sem við horfum á,“ segir hann. 

Nánar er rætt við Gunnlaug í nýjasta tölublaði Vikudags. 

Nýjast