Thorsil semur um raforkukaup fyrir Bakka

Thorsil ehf. tilkynnti í dag að fyrirtækið hefði gert samkomulag við Landsvirkjun um skilmála langtíma samnings um raforkukaup fyrir kísilmálmverksmiðju sem Thorsil hyggst reisa og reka að Bakka við Húsavík. Samkomulagið er háð vissum fyrirvörum sem ber að uppfylla fyrir endanlega gildistöku raforkukaupasamningsins, en áformað er að aðilar samningsins undirriti hann haustið 2012.

„Samkomulag Thorsils við Landsvirkjun er mjög stór áfangi í þeirri vinnu að gera áform Thorsils um að byggja kísilmálmverksmiðju á Íslandi að veruleika. Á grunni þessa samkomulags hefur okkur tekist að laða góð erlend fyrirtæki til þess að vera þátttakendur í verkefninu, bæði sem hluthafar og sem kaupendur á framleiðsluvörum verksmiðjunnar. Ég er mjög bjartsýnn á að Thorsil muni takast að hrinda áformum sínum um að byggja kísilmálmverksmiðju á Bakka í framkvæmd og vona að það verði til hagsbóta fyrir hluthafa fyrirtækisins auk þess sem það muni leiða til aukinnar hagsældar á Íslandi og þá ekki síst á Norð-Austurlandi, “ segir John Fenger, stjórnarformaður Thorsils.

Á grunni samkomulagsins við Landsvirkjun hafa Northsil ehf og Strokkur Energy ehf, sem eru eigendur Thorsil ehf., gert samkomulag (letter of intent) við tvö alþjóðleg fyrirtæki um að þau verði hluthafar í Thorsil. Þessi erlendu fyrirtæki hafa einnig undirritað viljayfirlýsingu (letter of intent) um að þau kaupi umtalsvert magn af kísilmálmi sem framleiddur verður í verksmiðju Thorsils á Bakka.

Thorsil á nú í viðræðum við Norðurþing um leigu á lóð undir verksmiðjuna og um afnot af höfninni á Húsavík. Ennfremur standa nú yfir viðræður á milli Thorsils og Landsnets um flutning á raforku til verksmiðjunnar.

Thorsil áformar að hefja framkvæmdir við byggingu verksmiðjunnar í þriðja ársfjórðungi 2013 og að framleiðsla hefjist í verksmiðjunni seinni hluta ársins 2015. Gert er ráð fyrir tveimur ofnum í verksmiðjunni til að byrja með og áætluð ársframleiðsla er 53 þúsund tonn.

Thorsil hefur ráðið Arctica Finance í Reykjavík til ráðgjafar við að fjármagna verkefnið.

Vinna við mat á umhverfisáhrifum kísilmálmverksmiðju Thorsils á Bakka er þegar hafin og annast verkfræðistofan Mannvit  þá vinnu.

Nýjast